Skjólstæðingi CPLS dæmdar bætur vegna rasískrar líkamsárásar

Fyrir skemmstu varð dómur endanlegur í máli þar sem skjólstæðingi Claudia & Partners Legal Services (CPLS) voru dæmdar bætur vegna árásar sem dómari taldi mega rekja til þjóðernisuppruna, litarháttar og kynþáttar.

Albert Björn Lúðvígsson, lögmaður, gætti hagsmuna brotaþola í málinu og hefur DV fjallað um niðurstöðu þess. 

Málið vakti athygli þar sem ákærði réðist á líkamlega fatlaðan, erlendan nágranna sinn, í fjölbýlishúsinu þar sem þeir bjuggu, og vitni bar um að hann hefði viðhaft orð sem fólu í sér kynþáttahatur í tengslum við árásina. Ekki er algengt að fallist sé á það í sakamálum hérlendis að brot megi rekja til þjóðernisuppruna, litarháttar og kynþáttar – en það gerði dómari hér, með vísan til ágætrar sönnunarstöðu.

Lögfræðingar CPLS sinna reglulega störfum sem verjendur og réttargæslumenn og er sjálfsagt að hafa samband vegna slíkra verkefna. 

Facebook
Twitter
LinkedIn