CPLS fagnar 4 ára starfsafmæli — Meira en áratugar reynsla að baki stofunni

Nú í upphafi árs 2026 heldur Claudia & Partners Legal Services (CPLS) upp á 4 ára starfsafmæli stofunnar.

Við erum einstaklingsmiðuð lögmannsstofa með sterkt orðspor er varðar fagmennsku, reynslu, menningarlegt næmi og árangur. Við bjóðum upp á skjóta og áreiðanlega lögfræðiþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og frjálsra félagasamtaka. 

Claudia Ashanie Wilson, stofnandi og yfirlögfræðingur, hefur unnið við lögfræðistörf frá árinu 2013 og er að góðu kunn fyrir störf sín er varða mann- og borgaraleg réttindi, útlendingarétt og flóttamannarétt. Hún býr einnig yfir yfirgripsmikilli þekkingu og starfsreynslu í fjölskyldurétti. Við erum stolt af öflugu starfsfólki okkar í Lágmúla og þakklát auðsýndu trausti skjólstæðinga okkar. 

Minnt er á að fyrsta viðtal viðskiptavina er án endurgjalds, og að unnt er að bóka slík netviðtöl á þriðjudögum og fimmtudögum á heimasíðunni: https://cpls.is/is/bokadu-fund-2/

Facebook
Twitter
LinkedIn