Undanfarna viku tóku þrír fulltrúar frá Claudia & Partners Legal Services (CPLS) þátt tveimur viðburðum á vegum Háskóla Íslands.
Þorgeir Helgason, lögfræðingur, tók þátt í pallborðsumræðum á jafnréttisdögum þann 11. febrúar sl. undir yfirskriftinni Why should I even learn this language? Pallborðsumræðurnar, sem voru á ensku, sneru einkum að kostum, tækifærum og áskorunum þess að læra íslensku í dag. Að umræðum loknum var boðið upp á spurningar.
Viðburðurinn var haldinn á vegum samtakanna Huldumála & Jafnréttisnefndar HÍ og fjallaði erindi Þorgeirs um hvernig þrengt hefur á ýmsan hátt að réttindum og tækifærum innflytjenda á Íslandi á undanförnum misserum. Með honum í pallborðinu voru Juan Camilo Roman Estada (sést ekki á mynd) og Stefanie Bade, starfsmenn Háskóla Íslands, Juan José Colorado Valencia nemandi við HÍ og formaður Huldumála og Sali Saleh sérfræðingur hjá Fjölmenningardeild Vinnumálastofnunar.
Anna Manning, lögfræðingur og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, lögmaður tóku þátt í viðburði Atvinnudaga HÍ Fáðu þér sæti í hádeginu í dag. Á annan tug sérfræðinga úr atvinnulífinu voru fengnir á vettvang til að stýra hringborðsumræðum með nemendum, hvort heldur á íslensku eða ensku, til að spjalla og veita góð ráð um hvernig hægt sé að feta sig á vinnumarkaði. Markmið skipuleggjenda var að bjóða upp á þægilegt andrúmsloft og ýta undir samtal og tengslamyndun – sem tókst með ágætum.
Samfélagsleg þátttaka er mikilvæg stoð í starfi CPLS og verður tekið þátt í fleiri viðburðum af þessu tagi á næstunni.
Ljósmyndir með frétt: Kristinn Ingvarsson og Jónína Ó. Kárdal.