Nú fyrir helgi var haldið upp á það á stofunni að Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, lögmaður og verkefnastjóri á málflutningssviði, hlaut þann 22. október sl. málflutningsréttindi fyrir Landsrétti. Auður er fyrsti lögmaður stofunnar til að ná þeim áfanga.
Til þess að verða landsréttarlögmaður þarf fyrst að flytja ákveðinn lágmarksfjölda mála fyrir héraði og í framhaldinu að flytja fjögur prófmál fyrir Landsrétti. Prófmálin sem Auður flutti sneru að fasteignagalla, dánarbússkiptum, fasteignaviðskiptum hjóna og forsjársviptingu. Eftir flutning málanna hlaut hún góða umsögn fyrir.
Stofan óskar Auði innilega til hamingju með nafnbótina og telur þetta mikilvægt skref í þágu aukins málflutnings síns – nú á æðra dómstigi.
Ljósmyndir með fréttinni voru teknar í lrl.-boðinu 6. nóvember sl.


