Undanfarna viku hefur mikið verið fjallað um fyrirhugaða og óvænta afturköllun Reykjavíkurborgar á lóð til ákveðins trúfélags, sem Albert Björn Lúðvígsson, lögmaður á stofunni, gætir hagsmuna.
Á fimmtudag var Albert í viðtali hjá fréttastofu Vísis vegna málsins og í gær fjallaði Ríkisútvarpiðítarlega um málið, með stuttum athugasemdum frá honum.
Mál þetta hefur vakið athygli annars vegar fyrir þær sakir að nokkuð hefur verið í umræðunni að trúfélög sitji á lóðum fyrir bænahús og framkvæmdir tefjist árum saman. Hins vegar hefur athygli beinst að þeim kröfum sem eru gerð til ríkis og sveitarfélaga um rétta birtingu ákvarðana og í þessu samhengi hvort stafræn pósthólf (jafnvel án þess að netfang forsvarsmanns eða félags fái viðvörun um nýtt skjal) dugi í því samhengi.
Um þetta sagði Albert við Vísi:
„Þessar fréttir komu okkur að óvörum. Félag múslíma á Íslandi kannast ekki við það að hafa fengið erindi frá Reykjavíkurborg um mögulega afturköllun þessarar lóðar. […] Það er hins vegar pínu einkennilegt að þetta hafi birst í fréttum í gærkvöldi og svo liggi fyrir tillaga fyrir borgarráði í morgun án þess að það hafi verið gerð tilraun, allavega meiri heldur en sagt er frá, til þess að hafa samband við þessi félög og það er miður. Félag múslíma á Íslandi hefur óskað eftir fundi með fulltrúum borgarráðs og borgarstjóra til að fara yfir þetta mál. Til að fá að leggja fram andmæli.“
Fyrir liggur að afgreiðslu borgarráðs var frestað eftir andmæli lögmannsins.
Á lagadeginum í Hörpu, síðastliðinn föstudag var málið jafnframt gert að umfjöllunarefni í erindi Elfar Logadóttur, framkvæmdastjóra ERA þar sem einmitt var fjallað um ásættanlegar birtingar hins opinbera.
Þess má að lokum geta að lögfræðingar CPLS eru sérfræðingar í stjórnsýslurétti og gæta reglulega hagsmunum bæði einstaklinga og félaga í samskiptum við hið opinbera.