Í liðinni viku flutti Claudia Ashanie Wilson, lögmaður og eigandi, fyrirlestur hjá samtökunum W.O.M.E.N. (Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi) um réttindi erlendra kvenna sem skilja og slíta sambúð hérlendis. Fyrirlesturinn er hluti af verkefninu „Knowledge Breaks the Cycle“ á vegumsamtakanna, miðar að vitundarvakningu um jafnrétti, lagalegan rétt og tiltækan stuðning og er styrkt af dómsmálaráðuneytinu.
Samtökin hafa beðið Claudiu um að halda fyrirlesturinn árlega frá árinu 2020 en hún var stjórnarmeðlimur í samtökunum á árum áður, þar á meðal varaformaður árið 2014. Um þrjátíu áheyrendur mættu á fyrirlesturinn þessu sinni.
Meðvitund erlendra kvenna hérlendis um réttindi sín stendur Claudiu nærri hjarta og stefnir hún því á áframhaldandi þátttöku í verkefninu.
Ljósmynd með frétt af Claudiu ásamt Najlaa Attaallah og Zaneta Kristjana Wilson, stjórnarmönnum í W.O.M.E.N., eftir fyrirlesturinn, 3. júní sl.