Fulltrúar CPLS í háskólakennslu

Nú í vor kenndu Claudia Ashanie Wilson, eigandi og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir,  lögmaður, tvo kennslutíma í námskeiðinu VIÐ288F – Diversity and Inclusion in Organizations, í meistaranámi viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands, sjötta árið í röð. Fyrri kennslustundin fór fram á Háskólatorgi en sú seinni í fundarherbergi lögmannsstofunnar – sem var mjög ánægjuleg heimsókn af hálfu um tuttugu nemenda.

Claudia og Auður hafa reglulega sinnt kennslustörfum undanfarinn áratug, mest við viðskiptafræðideild HÍ en einnig lagadeild, á menntavísindasviði, við GRÓ GEST og Háskólann á Bifröst.

Albert Björn Lúðvígsson, lögmaður á stofunni, kennir einnig árlega tíma er varða umsækjendur um alþjóðlega vernd, bæði við lagadeild og hjúkrunarfræðideild HÍ – í námskeiðunum FVS102M Flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd og HJÚ830G Hjúkrun, menning og margbreytileiki.

Þátttaka í fræðastarfi og upplýsingamiðlun er mikilvægur þáttur í starfi CPLS og er stefnt á áframhaldandi kennslu á komandi misserum. 

Ljósmynd með frétt af Claudiu ásamt Dr. Erlu Sólveigu Kristjánsdóttur og Þóru H. Christiansen, yfirkennurum ofangreinds viðskiptafræðinámskeiðs, eftir kennsluna á stofunni 17. apríl 2026.

Facebook
Twitter
LinkedIn